Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 21. mars 2017 09:00
Stefnir Stefánsson
Roma býður Totti starf yfirmanns íþróttamála
Francesco Totti er í guðatölu í Rómarborg
Francesco Totti er í guðatölu í Rómarborg
Mynd: Getty Images
Francesco Totti er gangandi goðsögn í Rómarborg en hann hefur verið aðalnúmerið hjá Roma síðan árið 1992. Þá hefur hann verið fyrirliði liðsins megnið af þessum tíma.

Þrátt fyrir það hefur hann fengið takmarkaðan spiltíma undir Spaletti síðastliðin tímabil enda orðinn 40 ára gamall.

Þegar hann hefur fegnið tækifærið hefur hann yfirleitt staðið sig vel en þessi augnablik eru af skornum skammti. Nú lýtur allt út fyrir að hann sé að leika sitt síðasta tímabil fyrir Roma.

En samkvæmt fréttum á Ítalíu er félagið að fara að bjóða honum 6 ára samning sem yfirmaður íþróttamála innan félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner