„Ég er leiður yfir því að yfirgefa svona marga vini mína hjá Manchester United," sagði þýski miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger í dag.
Hinn 32 ára gamli Schweinsteiger er á leið til Chicago Fire í MLS deildinni í Bandaríkjunum en þetta var staðfest í morgun.
Louis van Gaal keypti Schweinsteiger til Manchester United sumarið 2015. Á þessu tímabili hefur hann mjög lítið spilað undir stjórn Jose Mourinho.
„Ég naut þess að vinna með stjóranum, leikmönnunum og starfsfólkinu hér. Ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni," sagði Schweinsteiger.

„Ég vil sérstaklega þakka stuðningsmönnum United því stuðningur þeirra hefur verið mjög sérstakur fyrir mig á tíma mínum hér í Manchester."
„Ég er ánægður með að hafa verið hluti af hópnum sem vann enska bikarinn á síðasta tímabili og ég mun alltaf muna eftir orkunni og ástríðunni þar. Núna er rétti tíminn til að hefja nýjan kafla í Chicago og ég hlakka til."
Athugasemdir