Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 21. mars 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Tonny Mawejje á förum frá Þrótti
Tonny Mawejje.
Tonny Mawejje.
Mynd: Fótboti.net - Ómar Vilhelmsson
Miðjumaðurinn Tonny Mawejje er á förum frá Þrótti eftir tæp tvö ár í herbúðum félagsins.

Tonny kom til Þróttar um mitt sumar 2015 en hann lék áður með ÍBV frá 2009 til 2013 sem og með Val sumarið 2014.

Í janúar spilaði Tonny með landsliði Úganda í Afríkukeppninni en hann er staddur í heimalandi sínu í dag og vill fara frá Þrótti.

„Hann hefur óskað eftir að losna undan samningi og við reiknum ekki með honum í sumar," sagði Þórir Hákonarson, íþróttastjóri Þróttar, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Þróttarar eru þessa dagana í æfingaferð á Marbella á Spáni en þar er skoski miðjumaðurinn Robbie Crawford á reynslu hjá liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner