Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 21. mars 2018 15:15
Magnús Már Einarsson
Griezmann ætlar að velja félag fyrir HM
Hvar spilar hann á næsta tímabili?
Hvar spilar hann á næsta tímabili?
Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Antoine Greizmann ætlar að ákveða framtíð sína hjá félagsliði áður en hann fer á HM í Rússlandi í sumar.

Hinn 27 ára gamli Girezmann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona en Atletico Madrid ku einnig vera að undirbúa nýjan risasaming í von um að halda honum.

„Ég vil ferðast til Rússlands án þess að hafa áhyggjur. Þetta snýst ekki um að vita hvar ég spila heldur að fá frið í huga minn um það hvort ég geri eitt eða annað," sagði Griezmann.

„Þetta gæti hljómað leiðinlegt en ég hef sagt við systur mína að hvort ég sem ég verði áfram eða ekki þá verður gengið frá þessu fyrir mót."

„Það sem pirrar mig mest er að allir eru að spyrja mig út í þessi mál."

Athugasemdir
banner
banner