Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 21. apríl 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Baines: Endurkoma Moyes á Goodison Park kryddaði þetta
Mynd: Getty Images
Leighton Baines, leikmaður Everton á Englandi, var í skýjunum með sigur liðsins á Manchester United í gær en liðið vann með tveimur mörkum gegn engu.

Baines kom Everton yfir með marki úr vítaspyrnu áður en Kevin Mirallas bætti við öðru undir lok fyrri hálfleiks.

Hann segir að endurkoma David Moyes, knattspyrnustjóra Manchester United, á Goodison Park hafi kryddað leikinn.

,,Endurkoma Moyes á Goodison Park gaf þessu meira líf, sérstaklega fyrir stuðningsmenn. Þetta þýddi mikið fyrir þá og sigurinn þýddi mikið eftir að við töpuðum fyrir Crystal Palace í miðri viku," sagði Baines.

,,Við vildum svara fyrir það og sýndum það í dag. Ég var búinn að ákveða fyrir leikinn hvaða horn ég ætlaði að skjóta í ef við myndum fá víti," sagði hann svo að lokum er hann var spurður út í vítaspyrnuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner