Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 21. apríl 2014 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Martino: Tek alla ábyrgð á gengi liðsins
Tata Martino
Tata Martino
Mynd: Getty Images
Tata Martino, þjálfari Barcelona á Spáni, segist taka alla ábyrgð á gengi liðsins á þessari leiktíð.

Barcelona mun að öllum líkindum enda tímabilið án titils en liðið er úr leik í Meistaradeild Evrópu og þá tapaði liðið úrslitaleik spænska konungsbikarsins á dögunum, auk þess sem liðið er í öðru sæti deildarinnar.

Staða Martino hjá liðinu hefur verið rætt að undanförnu en búist er við því að hann taki poka sinn í sumar. Hann tekur alla ábyrgð á gengi liðsins.

,,Ég býst við miklu frá sjálfum mér. Ég kom til liðs þar sem vaninn hafði verið að vinna og þegar ég kom til liðsins þá hætti liðið að vinna. Þetta er á mína ábyrgð," sagði Martino.
Athugasemdir
banner
banner
banner