Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. apríl 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Stjarnan lagði Lazio
Sigrún Ella skoraði bæði mörkin gegn Lazio.  Hér er hún í leiknum.
Sigrún Ella skoraði bæði mörkin gegn Lazio. Hér er hún í leiknum.
Mynd: Stjarnan
Stjarnan kom í vikunni heim frá Ítalíu eftir æfingaferð þar sem liðið undirbjó sig fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Stjarnan lagði Lazio 2-0 í vikunni en fyrr í ferðinni hafði liðið sigraði Roma 4-3.

Sigrún Ella Einarsdóttir skoraði bæði mörk Stjörnunnar í leiknum gegn Lazio.

Stjarnan mætir Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ á Samsung vellinum klukkan 19:15 í kvöld.

Pepsi-deild kvenna hefst síðan á fimmtudag en þar mætir Stjarnan liði Hauka í fyrstu umferð.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner