Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. apríl 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Allir nema Schweinsteiger með á myndinni
Schweinsteiger spilar í dag með Chicago Fire.
Schweinsteiger spilar í dag með Chicago Fire.
Mynd: Getty Images
Tími Bastian Schweinsteiger í MLS-deildinni hefur hingað til verið áhugaverður. Hann hefur verið að spila vel innan vallar, en utan vallar hafa komið upp nokkur skemmtileg atvik.

Strax á fyrsta degi hjá Chicago Fire, á sínum blaðamannafundi, fékk Schweinsteiger mjög furðulega spurningu. Hann var spurður að því hvort að hann gtæi hjálpað Chicago að vinna heimsmeistaratitilinn, en eins og flestir vita eru það aðeins landslið sem spila á heimsmeistaramótinu.

Eric Gehrig, aðstoðarþjálfari Chicago Fire, birti athyglisverða mynd á Twitter. Á myndinni er stuðningsmaður Chicago að fá mynd með leikmönnum liðsins, en hver er að taka myndina? Jú, Bastian nokkur Schweinsteiger. Konan bað hann um að taka myndina.

Schweinsteiger gengur betur innan vallar, en þar hefur hann skorað tvö mörk í þremur leikjum fyrir Chicago Fire.

Gehrig birti myndina á Twitter og má sjá hana hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner