Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. apríl 2017 20:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Brighton þarf að bíða eftir titlinum
Markvörður Brighton með tvö sjálfsmörk
Stockdale átti ekki gott kvöld.
Stockdale átti ekki gott kvöld.
Mynd: Getty Images
Norwich 2 - 0 Brighton
1-0 David Stockdale ('18 , sjálfsmark)
2-0 David Stockdale ('40 , sjálfsmark)

Markvörðurinn David Stockdale vill gleyma leik kvöldsins í Championship-deildinni sem fyrst. Hann skoraði tvö sjálfsmörk þegar Brighton tapaði gegn Norwich.

Norwich átti ekki eitt skot á rammann í fyrri hálfleiknum, en þeir voru þrátt fyrir það með 2-0 forystu í hálfleik. Bæði mörkin þeirra voru sjálfsmörk hjá David Stockdale.

Mörkin voru alveg eins og Stockdale væntanlega miður sín. Ekki kvöldið hans, svo sannarlega ekki, en leikurinn endaði með 2-0 sigri Norwich á Carrow Road í kvöld.

Brighton hefði getað tryggt sér titilinn í Championship-deildinni í kvöld með sigri, en þeir verða að bíða lengur, en ljóst er að liðið mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner