Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 21. apríl 2017 19:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Holland: Albert heldur áfram að raða inn mörkum
Albert er að gera frábæra hluti!
Albert er að gera frábæra hluti!
Mynd: Getty Images
MVV 2 - 2 PSV II
1-0 Patrick N'Koyi-Kiabu ('41 )
1-1 Suently Alberto ('59 )
2-1 Alessandro Ciranni ('67 )
2-2 Albert Guðmundsson ('87 )

Hinn mjög efnilegi Albert Guðmundsson var bjargvættur varaliðs PSV er liðið gerði jafnefli gegn MVV í hollensku B-deildinni í kvöld.

Albert hefur verið að raða inn mörkunum í hollensku B-deildinni og hann var enn og aftur á skotskónum í kvöld.

Heimamenn í MVV komust tvisvar yfir í leiknum, en á 87. mínútu skoraði Albert sitt 11 mark í 11 leikjum varaliðs PSV.

Frábær árangur hjá þessum efnilega leikmanni og spurning hvenær hann fær tækifærið með aðalliði félagsins.

Varalið PSV er í toppbaráttunni í hollensku B-deildinni, en geta ekki farið upp samkvæmt reglunum í Hollandi.



Athugasemdir
banner
banner
banner