„Í stóra samhenginu þá myndi ég halda þetta sé endir Wayne Rooney hjá Manchester United," segir Roy Keane, fyrrum fyrirliði United, um núverandi fyrirliða liðsins, Wayne Rooney.
Rooney hefur verið í varahlutverki hjá Man Utd á tímabilinu. Hann sat enn og aftur á bekknum gegn Anderlecht í gær, en Keane segir að það hafi verið síðasti naglinn í líkkistu Rooney.
Rooney hefur verið í varahlutverki hjá Man Utd á tímabilinu. Hann sat enn og aftur á bekknum gegn Anderlecht í gær, en Keane segir að það hafi verið síðasti naglinn í líkkistu Rooney.
„Hann mun auðvitað hjálpa til loka tímabilsins vegna meiðsla," sagði Keane, en Zlatan Ibrahimovic meiddist illa í gær.
„Hann hlýtur samt að vera brjálaður með það að hafa ekki verið settur inn á. Ég held að það sé síðasta naglinn í líkkistu hans."
Rooney hefur ekkert komið við sögu síðan 1. apríl, í 0-0 jafntefli gegn West Brom. Hann hefur aðeins byrjað níu leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og fastlega er búist við því að hann fari í sumar.
Athugasemdir