Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 21. apríl 2017 20:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Hoffenheim bjargaði stigi í Köln
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Köln 1 - 1 Hoffenheim
1-0 Leonardo Bittencourt ('58 )
1-1 Kerem Demirbay ('90 )

Það var einn leikur í þýsku Bundesligunni í kvöld. Köln fékk Hoffenheim í heimsókn í hörkuleik.

Bæði lið eru í baráttu um Evrópusæti, Hoffenheim um sæti í Meistaradeildinni og Köln ætlar sér í Evrópudeildina.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það Köln sem náði forystunni. Markið skoraði Leonardo Bittencourt, fyrrum leikmaður, Dortmund eftir tæpa klukkustund af leiktíma.

Köln virtist vera að sigla sigrinum áður en Kerem Dembiray tók sig til og jafnaði í uppbótartíma. Þar við sat.

Lokatölur á RheinEnergieStadion í Köln í kvöld, 1-1. Köln hoppar upp í sjötta sæti, sem er Evrópusæti, og Hoffenheim er í þriðja sætinu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner