Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, verður frá keppni út tímabilið vegna meiðsla á hné. Sky Sports segir frá þessu.
Zlatan meiddist undir lok venjulegs leiktíma gegn Anderlecht í gærkvöldi. Meðislin litu ekki vel út og samkvæmt frétt Sky er tímabilið búið hjá Svíanum.
Þetta er mikið áfall fyrir Manchester United en liðið er á leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar auk þess sem það er að berjast um að ná sæti í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni.
Zlatan hefur skorað 28 mörk í öllum keppnum síðan hann kom til Manchester United frá PSG síðastliðið sumar.

Samningur Zlatan rennur út í sumar og þar sem hann hefur ekki ennþá ritað undir nýjan samning þá er möguleiki á að hann hafi spilað sinn síðasta leik með Manchester United.
Athugasemdir