Ander Herrera reyndist hetja Manchester United í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins gegn Tottenham í undanúrslitaleik ensku bikarkeppninnar.
„Ég er auðvitað mjög ánægður með þetta, við erum komnir í annan úrslitaleik og við erum farnir að venjast því að spila í úrslitaleikjum," sagði Herrera að leik loknum.
„Þetta félag snýst um titla og úrslitaleiki, miðverðirnir stóðu sig frábærlega í dag," sagði Herrera en þeir Chris Smalling og Phil Jones léku sem miðverðir í vörn Manchester United í dag.
Manchester United mætir Chelsea eða Southampton í úrslitaleik bikarsins þann 19. maí.
Athugasemdir