Fylkir tryggði sér sigur í B-deild Lengjubikars kvenna í dag með flottum sigri gegn HK/Víkingi.
Það voru þær Thelma Lóa Hermannsdóttir og Birna Kristín Eiríksdóttir sem skoruðu mörk Fylkis í 2-0 sigri.
Það voru þær Thelma Lóa Hermannsdóttir og Birna Kristín Eiríksdóttir sem skoruðu mörk Fylkis í 2-0 sigri.
Fylkir féll úr Pepsi-deild kvenna síðasta sumar en liðið hefur litið vel út á þessu undirbúningstímabil og ber þessi þess vitni. HK/Víkingur mun spila í Pepsi-deildinni í sumar, rétt eins og Selfoss og Grindavík sem mættust einnig í dag. Þar hafði Selfoss betur.
Til hamingju Fylkisstelpur!
Fylkir 2 - 0 HK/Víkingur
1-0 Thelma Lóa Hermannsdóttir ('45)
2-0 Birna Kristín Eiríksdóttir ('60)
Selfoss 2 - 0 Grindavík
1-0 Alexis Kiehl ('16)
2-0 Magdalena Anna Reimus ('56)
Athugasemdir