Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. apríl 2018 17:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna C-deild: Keflavík með fullt hús - Mögnuð endurkoma hjá Álftanesi
Álftanes kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir.
Álftanes kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Natasha var á skotskónum fyrir Keflavík.
Natasha var á skotskónum fyrir Keflavík.
Mynd: Keflavík
Riðill 1:
Álftanes 3 - 3 Þróttur R.
0-1 Gabríela Jónsdóttir ('37)
0-2 Elísabet Eir Hjálmarsdóttir ('41)
0-3 Elísabet Eir Hjálmarsdóttir ('53)
1-3 Saga Kjærbech Finnbogadóttir ('70, víti)
2-3 Oddný Sigurbergsdóttir ('75)
3-3 Sigrún Auður Sigurðardóttir ('80)

Álftanes og Þróttur Reykjavík skildu jöfn í mögnuðum leik í riðli 1 í C-deild Lengjubikars kvenna í dag.

Leikið var á Bessastaðavelli og það voru Þróttarar sem byrjuðu mikið betur og komust í 3-0. Síðasta mark Þróttar kom í upphafi fyrri hálfleiks en síðan vaknaði Álfantes. Saga Kjærbech Finnbogadóttir minnkaði muninn úr vítaspyrnu þegar 20 mínútur voru eftir og með tveimur mörkum til viðbótar jafnaði Álftanes.

Þróttur R. endar í þriðja sæti í þessum riðli á meðan Álftanes endar í fjórða sætinu með stigi minna.

ÍA vinnur riðilinn og Afturelding/Fram er í öðru sæti. Víkingur Ólafsvík rekur lestina án stiga og án þess að skora mark.

Riðill 2:
Grótta 2 - 3 Keflavík
1-0 Diljá Mjöll Aronsdóttir ('8)
1-1 Natasha Moraa Anasi ('9)
1-2 Sveindís Jane Jónsdóttir ('79)
1-3 Ástrós Lind Þórðardóttir ('85)
2-3 Diljá Mjöll Aronsdóttir ('89)

Fjölnir 8 - 0 Sindri
Mörk Fjölnis: Rósa Pálsdóttir 3, Rúna Sif Stefánsdóttir 2, Harpa Lind Guðnadóttir 2, Mist Þormóðsdóttir Grönvöld.

Í riðli 2 var það Keflavík sem stóð uppi sem sigurvegari með fullt hús stiga. Keflavík vann Gróttu í hörkuleik í dag á sama tíma og Fjölnir burstaði Sindra með átta mörkum gegn engu.

Fjölnir endar í öðru sæti á eftir Keflavík en Sindri og Grótta reka lestina. ÍR er í fjórða sæti og Augnablik í því þriðja.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner