Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. apríl 2018 19:07
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mjólkurbikarinn: Fram ekki í neinum vandræðum með GG
Guðmundur Magnússon skoraði þrennu.
Guðmundur Magnússon skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikir fóru fram í 2. umferð Mjólkurbikarsins í dag.

Skallagrímur og Reynir Sandgerði mættust í Akraneshöllinni og þar var niðurstaðan öruggur sigur Reynis, þeir sigruðu 0-9.

Á Akureyri mættust Magni og KF, Magni var með 2-0 forystu í hálfleik en skoruðu svo þrjú í seinni hálfleik og niðurstaðan 5-0 sigur þeirra.

Eitt mark dugði Einherja gegn Leikni F. en það skoraði Jökull Steinn Ólafsson í seinni hálfleik.

Fram sigraði GG örugglega en þar skoruðu heimamenn í Fram tíu mörk gegn engu marki gestanna.

Skallagrímur 0-9 Reynir S.
0-1 Max Grammel ('2)
0-2 Garðar Sigurðsson ('29)
0-3 Haukur Ingi Júlíusson ('34)
0-4 Haukur Ingi Júlíusson ('40)
0-5 Guðmundur Gísli Gunnarsson ('50)
0-6 Reynir Þór Valsson ('61)
0-7 Reynir Þór Valsson ('73)
0-8 Magnús Einar Magnússon ('79)
0-9 Reynir Þór Valsson ('86)

Magni 5-0 KF
1-0 Pétur Heiðar Kristjánsson ('7)
2-0 Kristinn Þór Rósbergsson ('30)
3-0 Sjálfsmark ('72)
4-0 Baldvin Ólafsson ('75)
5-0 Kristján Atli Marteinsson ('92)

Einherji 1-0 Leiknir F.
1-0 Jökull Steinn Ólafsson ('76)

Fram 10-0 GG
Mörk Fram: Guðmundur Magnússon - 3 mörk, Helgi Guðjónsson - 2 mörk, Orri Gunnarsson - 2 mörk, Mihajlo Jakimoski - 1 mark, Frederico Bello Saraiva - 1 mark, Alex Freyr Elísson - 1 mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner