Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. apríl 2018 06:30
Ingólfur Stefánsson
Mourinho: Verður erfitt að ná City á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Manchester United telur að það verði erfitt fyrir liðin í ensku úrvalsdeildinni að ná Manchester City á næsta tímabili ef að þeir spila eins og á tímabilinu sem er að líða.

Mourinho segir að næsta tímabil gæti orðið barátta um annað sætið hjá liðunum sem elta City sem tryggðu sér meistaratitilinn þegar fimm umferðir voru enn eftir í vetur.

„Það áttu mörg lið góð tímabil í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Við áttum gott tímabil líkt og Tottenham og Liverpool."

„Það var ómögulegt að reyna að vinna deildina því að City voru of góðir og sýndu mikinn stöðugleika. Ef þeir gera það aftur á næsta tímabili þá verður aftur erfitt fyrir hin liðin að ná þeim."
Athugasemdir
banner
banner