banner
   lau 21. apríl 2018 07:40
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Risastórt Pepsi-hringborð á X977 í dag - Vegleg upphitun
Valsmenn eru ríkjandi meistarar.
Valsmenn eru ríkjandi meistarar.
Mynd: Anna Þonn
Pepsi-deildin hefst næsta föstudag en mikil eftirvænting er í loftinu og fjölmiðlar keppast við að birta spár sínar fyrir mótið.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 í dag 12-14 verður helgaður deildinni, öll liðin tólf verða skoðuð og spáð í spilin.

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson verða við hringborðið. Þar verður einnig Davíð Snorri Jónasson, fyrrum þjálfari Leiknis og fyrrum aðstoðarþjálfari Stjörnunnar.

Allt sem þú þarft að vita áður en flautað verður til leiks!

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner