lau 21. apríl 2018 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Rodgers orðaður við Arsenal - Segist ánægður hjá Celtic
Rodgers er ánægður í Skotlandi.
Rodgers er ánægður í Skotlandi.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool og núverandi knattspyrnustjóri Celtic segir að sögur um það um að hann sé að fara taka við Arsenal trufli sig ekkert og segist ánægður hjá Celtic.

„Það er alltaf verið að orða hina og þessa við eitthvað annað lið, bæði leikmenn og þjálfara," sagði Rodgers.

„Ég er virkilega ánægður hérna, ég á þrjú ár eftir af samningi mínum eftir þetta tímabil. Allir hér hafa komið vel fram við mig og af virðingu síðan ég kom hingað."

„Svo ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég lítið að hugsa um þetta," sagði Rodgers um orðróminn um að hann sé að taka við Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner