Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. apríl 2018 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sanchez elskar Wembley - Pogba með frábæran undirbúning
Mynd: Getty Images
Það er kominn hálfleikur hjá Manchester United og Tottenham í fyrri undanúrslitaleik FA-bikarsins.

Staðan er 1-1. Tottenham byrjaði betur og komst yfir eftir aðeins 11 mínútur þegar Dele Alli skoraði. Sofandaháttur var yfir vörn United og Tottenham refsaði fyrir það.

En United var ekki lengi undir því Alexis Sanchez jafnaði fyrir United tæpum stundarfjórðungi síðar.

Þetta er þriðja mark Sanchez fyrir United en hann elskar að spila á Wembley. Hann hefur skorað átta mörk í þeim átta leikjum sem hann hefur spilað í á vellinum. Hann hefur skorað í fimm FA-bikarleikjum í röð á leikvanginum.

Markið sem hann skoraði í dag kom með skalla eftir frábæran undirbúning frá Paul Pogba.

Smelltu hér til að sjá mark Dele Alli.

Smelltu hér til að sjá mark Sanchez.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner