Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 21. apríl 2018 19:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sviss: Rúnar lék allan leikinn í tapi St. Gallen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
St. Gallen 0-1 Thun
0-1 Roy Gelmi ('88)

St. Gallen og Thun mættust í lokaleik dagsins í svissnesku deildinni í kvöld.

Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leikinn í liði St. Gallen.

Það stefndi allt í markalaust jafntefli þegar Roy Gelmi skoraði fyrir gestina í Thun á 88. mínútu og tryggði þeim stigin þrjú.

St. Gallen er í 3. sæti svissnesku deildarinnar en Thun í 6. sæti.
Athugasemdir
banner