Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. apríl 2018 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Wigan aftur í Championship (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Wigan mun leika í Championship deildinni á næsta tímabili en þetta var ljóst eftir 0-4 sigur þeirra í dag.

Þeir heimsóttu Fleetwood í dag þar sem eins og fyrr segir niðurstaðan var 0-4 sigur Wigan, þeir Max Power, Gavin Massey, Dan Burn og Cheyenne Dunkley skoruðu mörk þeirra í dag.

Wigan féll úr Championship deildinni síðasta vor en er nú á toppi C-deildar með 93 stig, þremur stigum meira en Blackburn sem er í öðru sæti.

Luton tryggði sér í dag sæti í C-deild eftir jafntefli við Carlisle, Luton er í öðru sæti D-deildarinnar en Accrington sem er í efsta sæti deildarinnar tryggði sæti sitt í C-deild á þriðjudaginn.







Athugasemdir
banner
banner