Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Leikir dagsins hér heima - Fjórða umferð klárast í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Fjórir leikir eru á dagskrá í íslenska boltanum í dag en þrír þeirra eru gríðarlega spennandi pepsideildarleikir.

Botnlið ÍA fær Fram í heimsókn á Akranes á meðan Stjarnan fær Val í heimsókn í efri hluta deildarinnar.

Breiðablik mætir svo FH í lokaleik dagsins í Pepsi deildinni en Blikar eru með sex stig og FH-ingar með sjö stig eftir þrjá leiki.

Það er einn leikur á Selfossi í dag þar sem Árborg fær Kóngana í heimsókn í 4. deild karla.

Pepsi-deild karla:
19:15 ÍA - Fram (Norðurársvöllurinn)
19:15 Stjarnan - Valur (Samsung völlurinn)
20:00 Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)

4. deild karla - A riðill:
20:00 Árborg - Kóngarnir (Selfossvöllur)
Slapp
banner
banner