Aron Jóhannsson, leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, var þriðji markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar.
Aron, sem er 22 ára gamall, kom til AZ Alkmaar frá AGF í Danmörku, en hann yfirgaf liðið nú í janúar.
Aron skoraði 14 mörk í 20 leikjum í dönsku deildinni, en hann varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar.
Andreas Cornelius, framherji FC Köbenhavn varð markahæstur með 18 mörk en á eftir honum kom Nicklas Helenius hjá Aab með 15 mörk.



