Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Carrick: Getum ekki beðið eftir að vinna með Moyes
Michael Carrick segir að nú verði leikmenn Manchester United að taka þeirri áskorun að skipta um knattspyrnustjóra í kjölfar komu David Moyes.

Sir Alex Ferguson lauk sínu síðasta tímabili við stjórnvölinn hjá Man Utd með að vinna ensku úrvalsdeildina og því mikil pressa á arftaka hans að halda góðu gengi áfram.

,,Við höfum haft stöðugleika svo lengi og alltaf vitað við hverju átti að búast, nú er þetta ný áskorun fyrir okkur að breyta um stjóra," sagði Carrick.

,,Við munum einbeita okkur að nýjum hlutum en margt sem við höfum verið að gera áður verður áfram á dagskránni vegna þess að það er ekki mikið af göllum í núverandi æfingakerfi okkar.

,,Okkur hlakkar til. Okkur hlakkar til að fá nýjan stjóra og við getum ekki beðið eftir að byrja að vinna með honum."

Slapp
banner
banner
banner