Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hefur ákveðið að vera áfram spilandi þjálfari hjá Barnet á næsta tímabili.
Barnet féll úr ensku D-deildinni niður í utandeildina á dögunum en Davids er ekki á þeim buxunum að hætta þrátt fyrir það.
Barnet féll úr ensku D-deildinni niður í utandeildina á dögunum en Davids er ekki á þeim buxunum að hætta þrátt fyrir það.
Davids tók við þjálfun Barnet í desember en hann kom nokkrum vikum fyrr til félagsins sem leikmaður.
Davids er orðinn fertugur en hann lék meðal annars með Juventus, AC Milan, Barcelona og Tottenham á sínum tíma.




