Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 15:30
Magnús Már Einarsson
Holloway þakkar þeim sem kúkaði í klefann
Ian Holloway, stjóri Crystal Palace, hefur þakkað þeim aðila sem kúkaði á gólfið í búningsklefa liðsins fyrir umspilsleikinn gegn Brighton á dögunum.

Brighton hefur beðist afsökunar á atvikinu og hafið formlega rannsókn á því til að reyna að finna sökudólginn.

Þegar leikmenn Crystal Palace mættu í síðari umpilsleikinn gegn Brighton var kúkur út um allt á gólfinu í búningsklefanum.

Holloway vill meina að það hafi gert leikmenn Crystal Palace ennþá ákveðnari fyrir leikinn en liðið fór með 2-0 sigur af hólmi og tryggði sér þannig sæti í úrslitum í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

,,Ég verð að þakka þessari persónu sem gerði þetta fyrir að gera mér stóran greiða," sagði Holloway.

,,Ég þurfti ekki að peppa leikmennina upp fyrir leikinn. Í sannleika sagt þurfti ég að róa þá niður."

Crystal Palace mætir Watford í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley næstkomandi mánudag.

Sjá einnig:
Einhver kúkaði í klefann - Rannsókn í gangi hjá Brighton
Slapp
banner
banner