Heimild: Guardian
Jurgen Klopp, þjálfari Dortmund, segist vera gráti næst þegar hann sér stöðu Shinji Kagawa hjá Manchester United.
Kagawa fór frá Dortmund til Manchester United síðastliðið sumar en hann átti ekki fast sæti í liði Englandsmeistaranna á nýliðnu tímabili.
Kagawa fór frá Dortmund til Manchester United síðastliðið sumar en hann átti ekki fast sæti í liði Englandsmeistaranna á nýliðnu tímabili.
,,Shinji Kagawa er einn af bestu leikmönnum í heimi og hann spilar núna 20 mínútur í leik með Manchester United, á vinstri kantinum. Hjarta mitt brotnar. Í alvöru, ég er með tár í augunum," sagði Klopp í viðtali við The Guardian í dag.
,,Besta staða Shinji er á miðjunni. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður og með eitt besta nef fyrir mörkum sem ég veit um. Fyrir fólk í Japan er merkilegra að spila með Man United en Dortmund."
,,Við grétum í 20 mínútur í örmum hvors annars þegar hann fór. Ári áður fór Nuri Sahin til Real Madrid því að það er stærsta félag í heimi. Ef leikmenn eru þolinmóðir þá getm við gert þetta félag eitt það stærsta í heimi."




