,,Það eru fyrst og fremst vonbrigði að hafa ekki náð að vinna leikinn. Mér fannst við vera með mjög góð tök á þessum leik í fyrri hálfleik en við gerum okkur seka um mistök í markinu sem við fáum á okkur," sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-1 jafntefli gegn Val í kvöld.
Bjarni Ólafur Eiríksson jafnaði leikinn fyrir Valsmenn eftir aukaspyrnu.
,,Það er alltaf áhyggjuefni þegar þú færð á þig mark. Við getum kannski ekki búist við því að lið eins og Valur komi hingað og skapi ekki eitt einasta færi. Í þessu marki var einn maður sem átti að dekka þennan mann og hann gerði það ekki og þeir skora."
Stjarnan er með sjö stig eftir fjórar umferðir en Logi er ekki sáttur með uppskeruna.
,,Það held ég ekki, við vildum fá meira út úr KR leiknum og þessum leik."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























