Heimild: Yahoo
Ronaldinho skoraði eina mark Atletico Mineiro í síðari úrslitaleik Mineiro deildarinnar gegn Cruzeiro. Mineiro hafði unnið fyrri leikinn 3-0 en tapaði síðari leiknum 2-1 þar sem mark Ronaldinho úr vítaspyrnu reyndist gríðarlega mikilvægt. Ronaldinho fagnaði markinu með því að kasta ímyndaðri handsprengju í pirraða stuðningsmenn andstæðinganna.


