Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-deildin: FH vann Blika - Vítaspyrnuklúður undir lokin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðasta leik fjórðu umferðar Pepsi-deildar karla var rétt í þessu að ljúka, en FH marði sigur á Breiðablik.

Emil Pálsson sá til þess að FH sótti þrjú stig á Kópavogsvelli. Björn Daníel átti þá frábæra sendingu inn fyrir á Emil sem átti laglegt skot í fjærhornið.

Breiðablik fékk vítaspyrnu undir lok leiks, en Róbert Örn Óskarsson varði þá meistaralega frá Árna Vilhjálmssyni sem hafði komið inn á sem varamaður stuttu áður.

Úrslit og markaskorarar:

Breiðablik 0-1 FH
0-1 Emil Pálsson ('16 )
Slapp
banner
banner
banner