Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 21:05
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-deildin: ÍA sigraði Fram - Stjarnan og Valur skildu jöfn
Bjarni Ólafur jafnaði metin fyrir Val
Bjarni Ólafur jafnaði metin fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla nú rétt í þessu, en ÍA vann öflugan 2-0 sigur á Fram í dag á meðan Stjarnan og Valur skildu jöfn.

Joakim Wrele kom Skagamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Hallur Flosason bætti við öðru marki. ÍA fer því upp úr fallsæti og í níunda sætið með sigrinum, en Fram er áfram í sjöunda sæti.

Stjarnan og Valur gerðu þá 1-1 jafntefli í Garðabæ. Michael Præst kom Stjörnunni yfir snemma leiks áður en Bjarni Ólafur Eiríksson jafnaði metin á 59. mínútu. Stjarnan því í fimmta sæti með 7 stig, en Valur í öðru sæti með 8 stig.

Úrslit og markaskorarar:

ÍA 2-0 Fram
1-0 Joakim Wrele ('45 )
2-0 Hallur Flosason ('49 )

Stjarnan 1-1 Valur
1-0 Michael Præst ('15 )
1-1 Bjarni Ólafur Eiríksson ('59 )
Slapp
banner
banner
banner