Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Razvan Rat á leið til West Ham
Sam Allardyce er búinn að staðfesta að West Ham er við það að ljúka viðræðum við rúmenska varnarmanninn Razvan Rat.

Rat kemur til félagsins frítt eftir að samningur hans við Shakhtar Donetsk rennur út í sumar, en Rat er 31 árs og á að fylla í stöðu vinstri bakvarðar sem hefur verið stórt vandamál hjá félaginu.

,,Ég held að það sé verið að ræða um skilmála og skilyrði og ef við komumst gegnum þann part viðræðanna þá vantar bara læknisskoðun," sagði Allardyce við Sky Sports News.

,,Hann lék í Meistaradeildinni á þessu tímabili, ef allt gengur að óskum fáum við leikmann sem hefur spilað á hæsta stigi fyrir landslið sitt og Shakhtar Donetsk.

,,Það væri frábært að fá erlendan leikmann með slíka reynslu og hæfileika í úrvalsdeildina."

Slapp