Heimild: Soccernet
Pepe Reina, markvörður Liverpool, segist ekki vita hvort eitthvað sé til í að Barcelona muni reyna að fá hann í sínar raðir í sumar.
Reina hefur verið orðaður við sitt gamla félag Barcelona að undanförnu en þessi þrítugi Spánverji segist vera ánægður hjá Liverpool í augnablikinu.
Reina hefur verið orðaður við sitt gamla félag Barcelona að undanförnu en þessi þrítugi Spánverji segist vera ánægður hjá Liverpool í augnablikinu.
,,Ég á þrjú ár eftir af samningi mínum hjá Liverpool. Ég er ánægður, ég kann vel við mig hér og fjölskyldan mín er ánægð," sagði Reina.
,,Það er erfitt að stjórna orðrómi en þú ert upp með þér þegar félag eins og Barcelona sýnir áhuga. Ég þekki félagið fullkomlega, ég ólst upp þar. Allir eru spenntir fyrir að spila með félagi eins og Barca."
,,Ég veit ekki hvort að félögin hafi verið í sambandi eða umboðsmaður minn. Umboðsmenn mínir sjá um þetta allt og ég stressa mig ekki fyrr en eitthvað gerist. Í augnablikinu held ég að ekkert alvarlegt sé í gangi."





