Heimild: Sky Sports
Það er vorhreinsun í gangi hjá úrvalsdeildarfélaginu Norwich eftir að hafa endað um miðja deild á nýafstaðnu tímabili.
Tíu leikmenn voru látnir fara frá félaginu eftir að sæti í efstu deild var tryggt, en meðal þeirra eru sóknarmaðurinn Simeon Jackson og miðjumaðurinn Korey Smith. Jackson á 86 leiki að baki fyrir Norwich og Smith 73.

Marc Tierney og Elliott Ward eru einnig að yfirgefa félagið eftir nokkurra ára dvöl og rúmlega 80 leiki spilaða samtals.
Chris Martin er á leið til Derby eftir 117 leiki fyrir Norwich og unglingarnir Tom Adeyemi og George Francomb yfirgefa þá einnig félagið.
Markvörðurinn Lee Camp sem kom í janúar fær að fara ásamt Ramil Sheriff og Scott Olumide Durojaiye.
,,Ég vil þakka hverjum og einum þessara stráka persónulega. Viðhorf þeirra á tímabilinu hefur verið frábært og þetta eru allt topp einstaklingar og við óskum þess alls hins besta," sagði Chris Hughton, knattspyrnustjóri Norwich.