Stoke hefur staðfest að Tony Pulis er hættur sem knattspyrnustjóri félagsins samkvæmt frétt BBC.
Pulis ákvað þetta eftir að hafa fundað með Peter Coates formanni félagsins í dag.
Pulis ákvað þetta eftir að hafa fundað með Peter Coates formanni félagsins í dag.
Pulis kom Stoke upp í ensku úrvalsdeildina árið 2008 og liðið hefur haldið sæti sínu síðan þá.
Leikstíll Stoke hefur ekki heillað marga undanfarin ár og í vetur urðu stuðningsmenn félagsins meira að segja þreyttir á honum.
Þrátt fyrir erfiða mánuði á síðari hluta tímabilsins endaði Stoke að lokum í þrettánda sæti úrvalsdeildarinnar.
Enskir veðbankar telja líklegast að Roberto Di Matteo eða Mark Hughes taki við Stoke.


