Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. maí 2015 17:30
Magnús Már Einarsson
Ibe og Flanagan krota undir nýja samninga hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Jordon Ibe og Jon Flanagan hafa framlengt samninga sína við Liverpool.

Ibe var á láni hjá Derby fyrri hluta tímabils en frá áramótum hefur hann spilað 13 leiki með Liverpool.

„Liverpool er frábært félag og ég kann við stefnuna hér," sagði hinn 19 ára gamli Ibe eftir að hann skrifaði undir.

Jon Flanagan hefur ekkert spilað á þessu tímabili vegna hné meiðsla sem hann varð fyrir á undirbúningstímabilinu.

Flanagan var hins vegar öflugur á síðasta tímabili þegar Liverpool endaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner