lau 21. maí 2016 17:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-deildin: Grindavík á toppinn eftir stórsigur á Leikni F.
Alexander Veigar skoraði annað mark Grindvíkinga
Alexander Veigar skoraði annað mark Grindvíkinga
Mynd: Grindavík
Grindavík 5 - 0 Leiknir F.
1-0 Andri Rúnar Bjarnason ('34, víti )
2-0 Alexander Veigar Þórarinsson ('47 )
3-0 Jósef Kristinn Jósefsson ('62 )
4-0 Aron Freyr Róbertsson ('75 )
5-0 Fransisco Eduardo Cruz Lemaur ('79 )
Rautt spjald: Jose Omar Ruiz Rocamora, Leiknir F. ('64 )
Nánar um leikinn

Lokaleik þriðju umferðar Inkasso-deildarinnar var að ljúka, en í leiknum áttust við Grindavík og Leiknir F.

Grindvíkingar höfðu unnið báða sína leiki fyrir þennan leik, en á meðan höfðu nýliðar Leiknis tapað báðum sínum.

Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir Grindavík, en markið skoraði Andri Rúnar Bjarnason úr vítaspyrnu.

Grindavík herti síðan tökin í seinni hálfleik og byrjaði það strax tveimur mínútum eftir leikhlé, en þá skoraði Alexander Veigar Þórarinsson magnað mark.

Jose Omar Ruiz Rocamora, leikmaður Leiknis var síðan rekinn af velli, og þrjú mörk hjá þeim gulklæddu fylgdu í kjölfarið. Jósef Kristinn skoraði fyrst áður en Aron Freyr Róbertsson og Fransisco Eduardo Cruz Lemaur bættu síðan við.

5-0 sigur Grindvíkinga í þessum leik og þeir fara á toppinn á markatölu og líta feykilega vel út. Leiknismenn leita á meðan enn að sínum fyrsta sigri í Inkasso deildinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner