„ Sáttur og ekki sáttur, auðvitað vill maður vinna alla fótboltaleiki og við Fylkismenn föru í fótboltaleiki til að vinna þá og maður er ósáttur með að fá þetta mark á okkur í lokin" sagði Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis eftir jafntefli við Keflvíkinga í Inkasso deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 1 Keflavík
„Það má eiginlega segja það að við höfum átt fyrir hálfleikinn en þeir þann seinni. Þeir voru sterkari í seinni hálfleik. Hvort sem því er um að kenna að við séum þreyttir eftir bikarleikinn en það á ekki að vera, við erum í toppstandi.
Það er margt mjög jákvætt. Við erum taplausir í deildinni, við svekkjum okkur á þessu í kvöld og mætum svo bara galvaskir á morgun hressir og kátir. Hefðum örugglega tekið það fyrir mótið að vera efstir með 7 stig eftir þrjá leiki"
Nánar er rætt við Helga í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir