Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. maí 2017 23:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Sturlaður fögnuður í sigurmarki Stjörnunnar
Eyjólfur Héðinsson gerði sigurmark Stjörnunnar.
Eyjólfur Héðinsson gerði sigurmark Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Stjarnan vann dramatískan sigur á KA í Pepsi-deild karla í kvöld.

Allt stefndi í 1-1 jafntefli, en sigurmark Stjörnunnar kom í uppbótartíma. Þetta sigurmark var stórglæsilegt.

Eyjólfur Héðinsson tók boltann viðstöðulaust á lofti eftir hornspyrnu og hamraði boltanum í netið.

Út braust mikill fögnuður og það varð allt vitlaust á Samsung vellinum í Garðabæ.

Stjörnumenn eru einir á toppnum eftir sigurinn, en þetta var fyrsta tap KA í Pepsi-deildinni 2017.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner