„Ég tek þessu stigi miðað við hvernig leikurinn þróaðist en ég hefði viljað þrjú í dag." sagði Stefán Gíslason þjálfari Hauka eftir jafntefli við ÍR á heimavelli í 3.umferð Inkasso deildarinnar.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 1 ÍR
Haukamenn voru ekki sáttir með tvo stóra dóma hjá Halldóri Breiðfjörð í leiknum í dag
„Nú eru við búnir með fjóra leiki og búnir að fá fjögur víti á okkur. Mér fannst þetta rosalega þunnt, alveg eins og vítið á móti Fram. Ég veit ekki hvort ég eigi að gagnrýna dómarann eða bara leikmennina sem eru að fiska þetta. Óíþróttamannsleg framkoma finnst mér."
„Hann var á gulu. Gula spjaldið fyrra var rétt, seinna gula þá var klárlega búið að brjóta á okkar manni þarna á undan og eins og ég sé þetta þá eru þeir að hlaupa saman þarna á eftir boltanum og mér fannst það líka strangt."
„Spilamennskan var fín, mjög góð þegar við vorum manni færri og marki undir. Fram að því þá var hún ekki eins og við lögðum upp með en strákarnir fá stórt credit fyrir að halda áfram og reyna og það skilaði sér í lokinn"
Athugasemdir