Zlatan Ibrahimovic gerði allt vitlaust á samfélagsmiðlum í gær. Hann setti inn myndband á Instagram og skrifaði við það stuttan texta.
Sænski sóknarmaðurinn gekkst undir aðgerð í Pittsburgh í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins, en hann meiddist illa í leik gegn Anderlecht í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Sænski sóknarmaðurinn gekkst undir aðgerð í Pittsburgh í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins, en hann meiddist illa í leik gegn Anderlecht í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Læknar Zlatan hafa verið mjög jákvæðir, en læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina sem hann fór í, sagði að svíinn sterki gæti spilað í mörg ár til viðbótar.
Eins og áður segir þá setti Zlatan myndband inn á Instagram þar sem hann sést labba í sundlaug og við það skrifaði hann texta sem gerði allt vitlaust hjá stuðningsmönnum Man Utd.
„Tilbúinn í úrslitaleikinn," skrifaði Zlatan.
Man Utd mætir Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, en Zlatan mun ferðast með liðinu í þann leik.
Athugasemdir