Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 21. maí 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Abramovich í vandræðum með landvistarleyfið
Mynd: Getty Images
Roman Abramovich er ekki ennþá búinn að fá landvistarleyfi sitt endurnýjað eftir að það rann út í síðasta mánuði.

Milljarðamæringurinn var ekki á svæðinu til að sjá sína mann fagna sigri í FA bikarnum vegna þess.

Umsókn hefur verið gerð um að fá leyfið endurnýjað en ferlið er að taka lengri tíma en vanalega.

Ekki er vitað hvort að tafirnar tengist nýlegum fréttum um eiturefnaárás á fyrrum njósnara KGB sem var búsettur í Bretlandi.

Útlendingaeftirlit Bretlands hefur neitað að tjá sig um málið og segist ekki ræða einstaka mál.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner