Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 21. maí 2018 19:27
Ingólfur Stefánsson
Færeyjar: Áttundi sigur HB í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í HB í Færeyjum eru óstöðvandi þessa dagana.

Sigurganga liðsins hélt áfram í dag þegar liðið vann sinn áttunda leik í röð.

HB vann 1-0 sigur á EB/Streymur í 11. umferð færeysku deildarinnar. Jogvan Andrias Nolsoe skoraði eina mark leiksins á 48. mínútu.

Brynjar Hlöðversson var með fyrirliðabandið hjá HB í dag.

HB eru á toppi færeysku deildarinnar með 28 stig, þremur stigum meira en nágrannarnir í B36 Þórshöfn í öðru sætinu.

Liðið hefur einungis tapað einum leik á tímabilinu en það var fyrsti leikur deildarinnar. Síðan þá hefur liðið verið taplaust í deildar- og bikarkeppni.

Athugasemdir
banner
banner
banner