Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. maí 2018 13:25
Magnús Már Einarsson
Hannes út af meiddur í hálfleik
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson fór af velli í hálfleik vegna meiðsla í leik Randers og Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Hannes kenndi sér meins á nára í fyrri hálfleik en spilaði út hálfleikinn.

Hannes kom ekki inn á völlinn í síðari hálfleik en Frederik Due tók stöðu hans. Randers var 1-0 yfir í leikhléi.

26 dagar eru í að Ísland mæti Argentínu í fyrsta leik á HM en fram að því eru vináttuleikir gegn Noregi og Gana þann 2 og 7. júní.

Vonandi er að meiðsli Hannesar séu ekki alvarleg og trufli hann ekki fyrir HM í sumar.




Athugasemdir
banner
banner