Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. maí 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Man Utd vill fá Willian
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur áhuga á að fá Willian í sínar raðir frá Chelsea í sumar. Sky Sports segir frá þessu.

Willian er 29 ára gamall en Manchester United er að íhuga að leggja fram tilboð í hann í sumar.

Willian á tvö ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea en hann vill fara ef Antonio Conte verður áfram stjóri.

Brasilíumaðurinn var ekki í byrjunarliði Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins gegn United um helgina.

Samband Willian og Conte virðist alls ekki vera gott því að leikmaðurinn klippti Conte út af mynd sem hann birti á Instagram eftir sigurinn í bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner