Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 21. maí 2018 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Morata er of dýr fyrir Juventus
Mynd: Getty Images
Juventus útilokar að fá Alvaro Morata til sín frá Chelsea, en Morata gerði fína hluti með félaginu frá 2014 til 2016.

Morata er of dýr fyrir Juve, en Chelsea keypti hann síðasta sumar fyrir um 65 milljónir punda. Morata hafði þá skorað 20 mörk í 43 leikjum fyrir Real Madrid tímabili fyrr.

„Leikmenn sem spila fyrir Juventus kunna að meta félagið. Það kemur ekki á óvart að Morata vilji koma hingað aftur," sagði Giuseppe Marotta, framkvæmdastjóri Juve.

„Vandamálið er verðmiðinn sem Chelsea setur, hann er alltof dýr."

Juve vann sinn sjöunda Ítalíumeistaratitil í röð fyrir viku og er með Gonzalo Higuain og Mario Mandzukic í sínum röðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner