Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. maí 2018 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-deildin: Eyjamenn héldu hreinu gegn FH
Yvan Erichot, miðvörður ÍBV.
Yvan Erichot, miðvörður ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV gerði markalaust jafntefli við FH er liðin mættust í fyrsta leik 5. umferðar Pepsi-deildarinnar í Vestmannaeyjum.

Hafnfirðingar byrjuðu mun betur og voru óheppnir að komast ekki yfir á fyrstu mínútunum. Eyjamenn fengu hálffæri en gestirnir héldu áfram að ógna og staðan markalaus í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn var í járnum fyrstu tuttugu mínúturnar en bæði lið fengu góð færi til að skora á síðasta hálftímanum.

Boltinn fór þó ekki inn og kræktu Eyjamenn í sitt annað stig á tímabilinu á meðan FH-ingar eru í öðru sæti, með tíu stig.

Hægt er að skoða textalýsingu úr leiknum hér. Frekari umfjöllun og viðtöl birtast innan skamms.
Athugasemdir
banner
banner