Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 21. maí 2018 22:24
Kristófer Jónsson
Rúnar Kristins: Þurfum að fara að nýta færin okkar
Rúnar var ekki svona kátur í leikslok
Rúnar var ekki svona kátur í leikslok
Mynd: Raggi Óla
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, hafði blendar tilfinningar eftir jafntefli sinna manna gegn Fjölni á Extra-vellinum í dag.

„Það er svekkjandi að við vorum ekki með afgerandi forystu eftir fyrri hálfleikinn en miðað við hvernig leikurinn þróaðist þá er eitt stig sanngjarnt."

Leikurinn var mjög kaflaskiptur en KR-ingar réðu öllu á vellinum fyrsta hálftímann. Mark Arnórs Breka virtist hins vegar gefa FJölnismönnum byr undir báða vængi og voru þeir sterkari í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 KR

„Þetta voru mjög erfiðar aðstæður þegar að leið á leikinn og vindurinn stjórnaði svolítið possession liðanna. Fjölnir var meira með boltann síðustu tuttugu mínúturnar og þeir nýttu vindinn."

KR er með sex stig eftir fimm umferðir en ljóst er að það er undir pari við það sem að ætlast er af Vesturbæjarliðinu.

„Stigasöfnunin hefur ekki gengið alveg eins og maður hefði óskað sér. Við erum ekki að tapa leikjum en við þurfum að fara að nýta færin betur. Við þurfum að fara að skora mörk og halda markinu okkar hreinu líka." sagði Rúnar að lokum.

Nánar er rætt við Rúnar í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner